Um mig....
Ég heiti Elísabet Líf og fæddist laugardaginn 11.apríl 2009. Ég fæddist á Landspítalanum í Reykjavík og var það ljósmóðirin Guðrún sem tók vel á móti mér.
Ég lét nú ekkert bíða eftir mér voðalega lengi...kom 2 1/2 klst á eftir settum degi sem var 10 apríl. Fæðingin gekk rosalega vel og píndi ég mömmu mína ekkert voðalega lengi.
Ég á alveg yndislega foreldra sem dýrka mig og dá, þau heita Marta Gunnarsdóttir (85') og Sigvaldi Lárus Guðmundsson (85'). Ég veit að pabba hlakkar roselga til þegar að ég verð aðeins stærri að geta sett mig á hestbak...því hann er alveg dolfallinn hestamaður...og svei mér þá, ég held ég komist ekkert hjá því að verða lítil sæt hestastelpa.
Ég á líka alveg fullt af ömmum og öfum sem eru voða grobbin. Föðurmegin eru það amma Svandís og afi Gummi, en ég er þeirra fyrsta barnabarn. Svo á ég líka langafa og langömmur pabba megin. Þau Elínu og Ólaf og svo Sonju og Sigvalda, en ég er fyrsta langömmu/afa barnið þeirra.
Mömmumegin er það afi Gunni og amma Sigga, en hún amma Sigga er uppi hjá englunum og finnst mér voða leiðinlegt að fá ekki að kynnast henni. Ég er einmit skírð eftir seinna nafninu hennar. Svo á ég aðra ömmu og afa sem koms til með að bæta missinn hennar upp að hluta og eru það amma Guðrún og afi Stefán í Búðardal og eru þau voða grobbin af mér. Svo síðast en ekki síðst á ég einn langafa mömmu megin og það er hann afi minn Dóri.
Svo á ég alveg ótrúlega mikið af frænkum og frændum sem þykja ógurlega vænt um mig, eins og Hákon frændi minn, Sindri bróðir pabba og margir margir fleiri!
Ég veit að ég er alveg rosalega heppin með fjölskyldu og hlakka til að kynnast þeim öllum betur. Ég veit að þau flest eru voða fúl að ég búi á Hólum núna, lengst í burtu frá öllum....en þau verða bara vera dugleg að heimsækja okkur þvi það er ekkert langt að fara nefnilega!!!
Hlakka til að sjá ykkur......

Þetta er ég 19 vikna og 4 daga
