Stjörnumerkið mitt
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barní hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkirengin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrtmeð hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt viðað taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sérheyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrirstafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki.Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrumbörnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér -það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þráathygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum.Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er einslíklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins ogótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honumhentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái miklahreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hannfær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður bestí lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðalveikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður enhann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.
